Efnið er fullkomið til að spreyja á alla snertifleti og hendur.
Hefur því engin skaðleg áhrif á húðina og mælt er með því að bera á hendurnar 2svar á dag.
Með því að nota þurrúðan úr 30-40cm fjarlægð frá raftækjum er með öllu óhætt að sótthreinsa þau með efninu.
X-Mist Room
Fjarlægið lokið af brúsanum.
Staðsetjið brúsann í miðju rýminu sem á að „mista“ en hver brúsi er með dreifigetu í allt að 35m2.
Á brúsanum er takki sem festist niðri ef ýtt er á hann.
Við það tæmir brúsinn sig sjálfkrafa á 3-4 mínútum og efnin dreifast um uppgefna stærð á svæði.
Mælt er með því að loka öllum gluggum og loka svo rýminu á eftir sér eftir að ýtt hefur verið á takkann.
Mælt er með því að mannfólk og gæludýr yfirgefi það rými sem verið er að „mista“.
Fyrir hámarksvirkni er mælt með því að skilja rýmið eftir í 3-4 klukkustundir en þó er klukkustund nóg fyrir góða virkni.
Þegar komið er aftur inn í rýmið er mælt með því að opna glugga en efnið skilur eftir léttan Tea Tree ilm.
Efnið hefur svo viku virkni á öllum yfirborðsflötum og sótthreinsar staði sem erfitt er að ná til.
Efnið heldur einnig niðri frjórkornum og myglugró.
X-Mist Vehicle
Fjarlægið lokið af brúsanum.
Staðsetjið brúsann á gólfið aftur í bílnum, ýtið á takkann og brúsinn tæmir sig á 3-4 mínútum. Hafið bílinn í gangi og miðstöðina á innflæði.
Þannig hreinsa efnin einnig miðstöðina.
Eftir 15 mínútur er mælt með því að fara aftur inn í bílinn eftir „mistun“ en þá hafa efnin náð fullri dreifingu.
Þennan brúsa má einnig nota í minni rými en hann inniheldur sömu efnablöndu og X-Mist Room.
Sé það gert dugar brúsinn í rými frá 15 upp í 20m2.
X-Mist Foam
Fjarlægið lokið af brúsanum.
Spreyið efninu á þá fleti sem á að þrífa.
Best er að leyfa efninu að liggja á í nokkrar mínútur og strjúka svo af með rökum klút.
Ef um erfiða bletti er að ræða endurtakið þá leikinn.
Efninu má spreyja á teppi, leður, plast, tau, gler og spegla.
Ávallt skal nota rakan klút og vel undinn trefjaklút.
Inn í X-Foam vörunni er hægt að sjá notkunarleiðbeiningar fyrir þrif á bíll.
X-Mist Tabs
Fyrir 100% lífrænan og umhverfisvænan vökva blandið þá einni töflu í ½ l af volgu vatni og leyfið henni að leysast upp (sjá betri blöndunarleiðbeiningar inn á X-Tabs vöru og hér að neðan).
Varan er tilbúin til notkunar þegar vökvin er orðinn bleikur.
Með vökvanum geturðu leyst upp fitubletti og prófað þig áfram með hverskyns myglugró og almenn þrif.
Fyrir notkun í þvottavélar og uppþvottavélar – setjið 4-6 töflur inn í þvottavélina sjálfa og þvottur verður mun hvítari með sótthreinsieiginleikum efnisins.
Einnig lengir taflan endingartíma vélanna og þeirri myglugró sem kann að myndast eyðir taflan.
Við mælum með því að prófa sig áfram hversu margar töflur þarf fyrir hámarksárangur en það er bundið við stærð vélanna.
Taflan er einfaldlega sett með leirtauinu eða þvottinum og leysist upp í vatninu.
Hellið innihaldinu þegar vökvinn er orðin glær eða eftir 24 klst.